Úff!
Ein ekki að virka sem bloggari, en ætlaði bara að segja að það væru nokkrar nýjar myndir inni á myndasíðunni
I'm Back!
Einn daginn fórum við fjölskyldan í svona "túrista dagsferð" þ.a.s. The Golden Circle, ekkert smá gaman,,, fórum á Þingvelli, Gullfoss og Geysi og fannst okkur og krökkunum þetta ofboðslega gaman.
Þann 26. júlí eignaðist svo hún Begga mín "hér" yndislega litla prinsessu sem nú hefur fengið það fallega nafn Kristbjörg Anna *knús* og *koss* til þeirra, og Kidda líka sko



Um verslunarmannahelgina fórum við upp í sveit til hennar Ingibjargar vinkonu minnar og tjölduðum þar, það var rosalega gaman, bæði að hitta hana og dætur hennar (takk fyrir okkur stelpur) svo var farið á hestbak, sem er nottulega alltaf brjál gaman og bara verið saman, aðalega þó BORÐAÐ saman hehehe.
Í byrjun ágúst skruppum við Stebbi svo til NYC til að verlsa föt og skóladót fyrir krakkana og að sjálfsögðu skemmtum við okkur konunglega þar, enda ekki annað hægt,,, steik hiti og næs,,, vorum reyndar á hóteli inn í New Jersey (allt miklu ódýrara sko) og tókum bara lest á milli. Það var reyndar allt í gangi þarna rétt á meðan við vorum, skotárásir, hvirfilvindar, grunur um hriðjuverk og blablalba en þetta er USA og ekki við öðru að búast og svo lentum við á leigubílstjóra sem var algjör padda,,,,,,,,,,,,, nei alveg rétt hann heitir Padda!!!!
Svo núna eru Sandgerðisdagar ný afstaðinir og voru þeira alveg hreint frábærir,,,, ofboðslega gaman hvað fólk stóð saman í að skreyta hjá sér (hverfum skipt niður í liti) ég er í rauða hverfinu og að sjálfsögðu unnum við hí hí,,, það var ofboðslega skemmtileg stemming sem myndaðist í bænum og svo skemmtu krakkarnir sér alveg rosalega vel alla helgina við að taka þátt í hinum og þessum skemmtilegum dagskrárliðum. Bara takk takk til þeirra sem skipulögðu Sandgerðisdaga. Sjálf fannst mér flugeldasýningin alveg toppurinn og var hún algerlega ÆÐISLEG,,,, nú er manni bara farið að hlakka til næsta árs :)
Svo er Ljósanótt næstu helgi og er ætlunin að fara inn í kef og skemmta sér dálítið
Bæ í bili
Ps. er að setja inn slatta af myndum inn á myndasíðuna
Eruð þið að djóka með veðrið!!!!!
Hæ hó það er sko komið sumar, ég bara man ekki eftir öðru eins, bara hægt að sóla sig uppá hvern dag
Júni búinn að vera svo skemmtilegur, búin að vera nokkuð dugleg í garðinum, potturinn búinn að vera í mikilli notkun, búin að fara í Bláa lónið, sem var bara æði í sól, logni og með live tónlist, gerist bara ekki betra
eitthvað annað en Bláa lóns ferðin þarna í apríl hahaha
Garðar Þór hélt uppá 11. ára afmælið sitt á Mamma mía þann 22. júní, og það var mjög skemmtilegt
og Elvar Örn átti 8 ára afmæli í gær, til hamingju með afmælið yndislegu strákarnir mínir *knús og kossar*
Alexandra fór til Búlagaríu með pabba sínum í 2 víkur, og ég saknaði hennar brjálæðislega mikið, en í millitíðinni kom samt Maddý heim í smá heimsókn ,og það var bara æði að fá að knúsa hana aðeins. Fórum uppí bústað til Bryndís og Óla, og er bústaðurinn alltaf að verða glæsilegri og glæsilegri. Borðum góðan mat, drukkum að sjálfsögðu MOJITO ásamt fleiri góðum drykkjum
Maddý skellti sér í sund með strákana og allir höfðu það ofsa gott ![]()
Svo núna um helgina var ég með pottapartý fyrir okkur "Smartz" stelpurnar, sem var alveg ofboðslega skemmtilegt og var þemað Hawaii
og tókum við okkur bara mjög vel út í þeim gírnum
borðuðum grillaðann kjúlla og með því, en í aðalrétt var að sjálfsögðu MOJITO, og var sko vel drukkið af því ![]()
Fullt af nýjum myndum inná http://picasaweb.google.com/soffjo
Aloha,
Soffía
Gaman saman
Jæja síðasta blogg snérist um endalausa skemmtun og hittinga, og verð ég að segja að það var bara allt mjög skemmtilegt :) Fór semsagt á vorfagnað A/C vaktarinnar á laugardeginum, sem var mjög ævintýralegt, byrjaði á að fara heim til Tinnu, þar sem hún bauð upp á þetta líka fína jarðaberja freyðivín, og svo seint og síðar meir fórum við á H punktinn þar sem allt húllum hæið fór fram, þar fór nú frekar lítið fyrir því yndisega fólki sem vinnur í afgreiðslunni (sökum hvítasunnuhelgar). Við létum það nú ekki á okkur fá, og skemmtum okkur við hin ýmsu uppátæki, t.d. gekk Tinna á spegil sem var nottulega bara fyndið, svo tókum við Bjarni (aka Sonny) okkur til og tókum þátt í kraíókíkeppni með laginu Paradise by the dashboard light með Meetloaf og viti menn við unnum :)))) Erum svo klár!!!Svo þegar ég var búin að vinna og við búnar að skemmta okkur bara nokkuð vel, þá ákvað ég að skemmta okkur aðeins meir með því að detta niður stigann, takk fyrir kærlega, (tek það fram að það var ekki vegna ölvunar) og mín semsagt með brotð eða brákað rifbein og ekkert hægt að gera :( En þetta var auðvitað bara fyndið.
Svo kom næsta djamm með smartz gellunum (það slægðust nú einhver karlpeningur með í það skiptið) Og það var ógó gaman, fórum í partý hjá Önnu og Kris, þar sem Kris blastaði græurnar og var bara nokkuð góður í því, enda ráðinn á staðnum í tilvonandi pottapartý. Tinna, Svava og ég vorum hrikalega duglegar í Mojito og við skulum ekkert orðlengja það meira, síðan var farið á Vegó og drukkið aðeins meira og dansað og endaði svo geimið á Subway, sem er að sjálfsögðu allaf besti staðurinn til að enda djammið. En þetta var bara ógeðslega skemmtilegt. Svo er fullt af nýjum hittingum og öðru djammi á næstunni en allt í hófi samt :)

En því miður þurfti að fresta hittingnum hjá okkur Bryndísi, Beggu, Möggu og Hrefnu þar til síðar. By the way hvar í óskupunum ertu bumbulína?
ÉG VIL FÁ COMMENT
Allt í gangi
Jabb þegar það rignir þá hellirignir, ekkert smá mikið að gera þessa dagana. Fór á vorfagnað hjá Igs síðustu helgi sem var rosalega gaman, byrjaði samt kvöldið á að búa til Mojito í fyrsta skipti, og viti menn ég geri besta Mojito á Íslandi, alveg satt sko :) En svo er reyndar vorfagnaður hjá hinni vaktinni næstu helgi, sem er sko mín vakt, þannig að ég er að spá í að mæta bara þar líka :))))))) Síðan erum við Smartz gellur (og Kris eitthvað að reyna að vera með, kerlingin sú arna, but he must stepp it up því nú geri ég besta mojito-inn og hvaða gagn verður þá af honum??????) að plana hitting næstu helgi líka, þannig ég verð bara í þessu. Það var líka eitthvað verið að ræða hitting hjá mér með Bryndísi, Beggu, Möggu og Hrefnu á næstunni, en stelpur það bara heyrist ekkert í ykkur þannig að.................I don't know.Skildulesning!
Fékk þetta á mailinu og varð bara að deila því með ykkur
Raunir konu sem ætlaði að skella sér í vax… Þið eruð ekkert viðkvæmar?
Ég raka venjulegast á mér lappirnar því ég er bara of nísk til að fara
reglulega í vax til að ráða við þennan frumskóg á löppunum á mér. Síðan fór
ég í Hagkaup um helgina og sá eitthvað rosalega sniðugt vax, auðvelt í
notkun, sársaukalaust og það besta að maður á að vera laus við hárin í 4-5
vikur..... og það var á tilboði! Þannig að ég skellti mér á það.
Síðan svæfði ég börnin og fór síðan inn á bað til að byrja hreingerninguna,
ætlunin var nefnilega að koma kallinum á óvart þegar hann kæmi heim úr
ferðalaginu seinna um kvöldið. Ég tók vaxið upp úr kassanum, þetta var svona
kaldir vaxrenningar sem átti að nudda á milli handanna til að hita áður en
þeir væru settir á hárugu svæðin. Ég byrjaði að nudda renningana en sá fram
á að það myndi taka alltof langan tíma og fékk því snilldarhugmynd. Ég lagði
þá bara á borðið við hliðina á vaskinum, náði í hárblásarann, setti hann í
botn og var nákvæmlega enga stund að hita þá. Síðan setti ég þá á leggina á
mér og....... þetta var.... heitt og alls. ekki. sársaukalaust!
En ég viðurkenni þó að ég átti von á meiri sársauka, kona sem hefur gengist
undir tvennar deyfilausar fæðingar og rúmlega 30 spor í hvort sinn, þolir nú
alveg að 100+ hár séu rifin upp með rótum með einum vaxstrimli. Þannig að ég
hélt áfram, kláraði lappirnar og eina rauðvínsflösku í leiðinni.
Þá fékk ég aðra brilljant hugmynd, ákvað að koma kallinum virkilega á óvart
og leyfa honum að kíkja á eina sköllótta, það myndi án efa leiða til ýmissa
skemmtilegra "æfinga". Þannig að ég athugaði með börnin, þau voru enn
sofandi, náði mér í aðra rauðvínsflösku, hitaði vaxrenning, setti annan
fótinn upp á klósettið og skellti renningnum í klofið..... og reif af. Ó MÆ
GOD!!! Ó JESÚS KRISTUR!!! ÉG SÉ EKKERT, ÉG ER BLIND, ÞVÍLÍKUR SÁRSAUKI!!! Ég
var blinduð af sársauka, sló niður hárblásarann og rauðvínsflöskuna áður en
ég náði andanum aftur. Ég hélt ég hefði gelt sjálfa mig með því að rífa af
mér hálfa píkuna! Ég þakkaði allavega fyrir að miðað við sársaukann þá gat
ekki verið eitt stingandi strá eftir.
Ég leit á vaxrenninginn. FUCK! FUCK, SHIT, FUCK! Hann. var. tómur. Ekki eitt
einasta hár á renningnum.... og ekki neitt vax heldur! HVAR VAR VAXIÐ??? Ég
leit hægt niður, hrædd við sjónina sem beið mín..... allt vaxið af
renningnum var í klofinu á mér. Ég leit til himins. WHY? Og gjörsamlega
miður tók fótinn niður af klósettinu! Mistök! ÞVÍLÍK MISTÖK! Ég gjörsamlega
heyrði píkuna og rasskinnarnar límast saman!
Ég gekk um baðherbergisgólfið algjörlega miður mín og hugsaði hvað til
bragðs skyldi taka. Hvernig get ég losnað við vaxið. Ég prófaði að toga það
af með puttunum. Ekki góð hugmynd. Ég yrði að láta það leysast upp, bræða
það á einhvern máta. Hvað bræðir vax? Mér varð litið á hárblásarann en hvarf
strax frá þeirri hugmynd þar sem mig langaði ekki til að útskýra brunasárin
á brunadeildinni niður á Borgarspítala. Vatn! Vatn bræðir vax. Ég lét vatn
renna í baðið, svo heitt að Saddam Hussein hefði kosið að nota það til að
pynda óvini sína, ég aftur á móti dró andann djúpt, gekkst undir pyntingar
sjálfviljug og settist í baðkarið.
Ég komst að nokkru sem ég hafði ekki vitað áður. Vatn bræðir ekki vax!
Neibb, 60 gráðu heitt vatn bræðir ekki vax, aftur á móti var ég nú límd föst
við baðbotninn! Heilinn fór í óverdræv, hvernig gat ég bjargað mér úr
þessari klípu? Eftir ýmsar tilraunir sem allar mislukkuðust, náði ég í Lady
rakvélina mína og ákvað að skafa vaxið af! Ef ykkur langar til að vita
hvernig það var legg ég til að þið rakið ykkur með ársgamalli vel notaðri
rakvél, notið ekki vatn né nokkurs konar sápu. Þá komist þið nálægt því!
Ég var að reyna að skafa vaxið af þegar ég kom loksins auga á bjargvættinn
minn. Hallelújah, Praise the Lord. Það fylgdi nefnilega með í pakkanum svona
vax remover. Ég hafði bara ekki tekið eftir því fyrr. Ég flýtti mér að ná í
bómull, hella slatta í og nudda yfir vaxið. ÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ! Klofið á mér brann!
Það var eins og ég hefði hellt yfir það bensíni og kveikt í! En mér var sama
því helvítis draslið virkaði. Því þoldi ég sársauka sem yfirgnæfði allan
þann sársauka sem ég hafði upplifað við fæðingarnar og gerði mig 150%
tilbúna í 10 fæðingar í viðbót.
Þegar ég var búin að hreinsa allt vaxið af skoðaði ég djásnið. Þrátt fyrir
öll ósköpin hafði ekki. eitt. einasta. hár. horfið! Ekki. eitt. einasta!!!
Þegar maðurinn kom heim var ég búin að víggirða minn helming af rúminu.....
Þetta er nottulega bara snilld :)