25apríl
Þegar ég kom heim úr vinnunni klukkan 2 þar síðustu nótt, haldið þið ekki að hann Stebbi hafi verið búinn að vaka eftir mér, setja í pottinn og kveikja á útikertum, ekkert smá sætur og þetta var rosalega notalegt svona um miðja nótt. (Mín nefnilega aldrei tilbúin að fara að sofa fyrr en seint og síðar meir þegar hún kemur svona seint heim úr vinnu).
Svo er svo margt í gangi núna á næstunni, loksins ætlar okkur Beggu í Reykjavík að takast að hittast, og ætlar sá hittingur að fara fram á fimmtudaginn:) Það er búið að vera mjög erfið fæðing :) Annars ætla ég að fara að kalla hana Beggu vinkonu sem er hér suðurfrá " Beggu hér" og Begga í Reykjavík verður því " Begga þar "
Svo er á döfinni smá "Hertz" hittingur á mánudaginn og hlakka ég geggjað mikið til þess, komst ekki með þeim síðast þannig ég þarf að skemmta mér tvöfalt mikið

Svo er auðvitað Eurovision og kosningar á næstunni og það eru að sjálfsögðu tvær góðar ástæður til að gera eitthvað skemmtilegt (ef maður er ekki að vinna þar að segja).
20apríl
Ég og mín familía tókum sko sumardaginn fyrsta með trompi. Unnum í garðinum, settum saman nýja trambólínið (hitt fór í veður og vind, blessuð sé mynning þess), grilluðum og fórum í heita pottinn.
Ég sat semsagt í einhverjar sex klukkustundir í trjábeði og hreinsaði rusl, arfa, laufblöð og annan óþarfa. Enda rosalega stolt af mér, því ég hef sko ekki hundsvit á garðyrkju (held meira að segja að hundurinn hafi meira vit á því, hann át allavega grasið í gríð og erg). En eitt get ég upplýst ykkur um , neglur og garðyrjkja (þó mar sé í hönskum) fara ekki vel saman, þær eru sko allar í rúst

Svo við tölum nú ekki um vöfðabólguna sem fylgir þessu. Og ekki nóg með það að hafa setið þarna í 6 klst, þá er ég ekki einu sinni hálfnuð, garðurinn minn er aðeins of stór

Þannig að í þetta verð ég að eyða töluvert fleiri klukkustundum , og var ég því guðs lifandi fegin að það rignir í dag

Og fröken Soffía fer sko ekki út í rigningu til að sinna vorverkunum. Og já það er komið vor, því einhver sagði að þegar ormarnir væru kominir þá væri komið vor, og belive u me að moldin hjá mér er sko lifandi af litlum sem stórum ormum.
Já og svo verð ég að segja ykkur þetta, ég semsagt var að brjóta saman þvott áðan, nánar tiltekið gallabuxurnar hans Garðars, og viti menn haldið þið ekki að ég finni GSM símann hans. Aha, hann var semsagt búinn að fara í þvott og ekki nóg með það heldur var hann líka búinn að fara í einn og hálfan tíma í þurkara og viti menn hann VIRKAR!!!!! Ótrúlegt bull.
Og svo með þetta MySpace, vá, maður hugsar valla um annað þessa dagana, algerlega ávanabindandi, það ætti að setja svona varúðanir á síðurnar eins og sett er á tópakið o.þ.h. (sé ykkur samt á space-inu)
Svo bara verð ég að skella þessari auglýsingu hérna inn:
Hljómsveitin Sviðin Jörð leikur fyrir dansi á Pravda í kvöld,
logandi heitur Kebab og orkudrykkurinn BURN fylgir hverjum miða.
Eldheit stemming!! Athugið að staðurinn er ekki reyklaus.
17apríl
Mín var sko ekki vandamálið, það voru þær Ásta og Eva Rós

Þannig að nú er mín bara að dunda sér við að eignast vini

Og Ásta og Eva verða sko bara að adda mér, því það kemur bara bull þegar ég reyni að adda þeim. Svo er það nú annað bull, urlið mitt er "baragaman" var þvílíkt búin að reyna að finna eitthvað venjulegt en nei meira að segja soffiahauth var frátekið, hvernig má það vera????????? Og Begga mín nú verður þú bara líka að koma á myspace, það þýðir ekkert að vera svona útundan
17apríl
Sko ég ætlaði að uppfæra sjálfa mig og gerast meðlimur á hinu geysivinsæla Myspace. En ég get sko sagt ykkur það að ég held ég sé bara búin að gefast upp strax. Einhver asnk.... böggur í gangi og ég getiggi eignast neina vina

Og hvað er gagnið af Myspace ef þú getur ekki eignast vini? Já nákvæmlega, ekkert gagn. Þannig að ég hreinlega veit ekki hvert framhaldið af þessu bulli verður!"#$%&&/( Sjáum til kannsi laga þeir þetta bull. En takk fyrir kvittið allar, love u
12apríl
Þetta er setning sem ég greip á lofti úr myndinni Finding Forrester sem sýnd var í sjónvarpinu um páskana. Fannst þetta líka þessi flotta setning og var sko ekki lengi að skjóta henni á Stebba. En eins og oftast var Stebbi nú ekki lengi að bregðast við og ætlaði sko að koma konu sinni á óvart. Og verð ég bara að deila því með ykkur.
Aðfaranótt miðvikudagsins var ég að vinna í lostinu til klukkan 2, og hlakkaði geðveikt til að sofa út svo langt sem það náði því ég var að fara til Reyjavíkur í jarðaför eftir hádegi og stillti því klukkuna á 11. En svo vakna ég við "Soffía mín vaknaðu" og ég hugsa bara nei, ég veit að helv... klukkan er ekki búin að hringja, það bara getur ekki verið, ég er svo þreytt, en áfram heldur hann " það er verið að koma að sækja þig, ég er búinn að plana svolítið handa þér" Ég í einhverri leiðslu fer á fætur og fer að hafa mig til og varla hálfnuð þegar það er kominn leigubíll að sækja mig. Þegar ég er að klæða mig í kápuna skellur allt í einu á þetta ógeðslega veður en það var auðvitað í lagi mín vegna því ég var nú ekki að fara að stunda einvherja útivist.......................
Hálf sofandi og hálf ringluð kyssi ég Stebba bless og hann skellir á mig bakpoka og brosir (rosa stoltur af sér, að vera svona góður við konuna sína) Þegar ég hlamma mér inn í leigubílinn segir gamli maðurinn undir stýri " Jæja, hefur þú aldrei komið í Bláa lónið?" Jú jú auðvitað hef ég komið þangað, og hugsaði ummm ég er örugglega á leiðinni í nudd. Alla leiðini frá Sandgerði og í Bláa lónið versnaði og versnaði veðrið en ég var ekkert að pæla í því, því þótt ég væri örugglega að fara í nudd þá ÞYRFTI ég ekkert að fara ofan í Bláa lónið!
Ég stíg út úr leigubílnum og byrja að labba þennan LANGA göngustíg sem liggur að lóninu með 20 metra á sekúndu og ískalda rigningu í fangið og á endanum komin með brjálað kul á ennið. Svo hamingjusöm þegar ég komst á leiðarenda og klukkan 10:10. Ég fer að afgreiðsluborðinu og segi þeim nafnið mitt og að ég eigi örugglega pantað í nudd hjá þeim. Það passar ég á pantaðann tíma klukkan 11:00 í 50mín nudd. Ég hugsa hólí ká, Stebbi er ekki að fatta að ég þarf að vera komin til Reykjavíkur klukkan 12:30, og eftir nuddið ætti ég líka eftir að komast aftur inn í Sandgerði til að fara í viðeigandi fatnað. Stelpan í afgreiðslunni fær athygli mína aftur þegar hún spyr mig " Veistu hvar þú ferð í nuddið?" Nei, það vissi ég ekki, hún tekur upp kort af lóninu og sýnir mér hvert ég þarf að SYNDA, takk fyrir kærlega. Ég með alla mína þanka fer inn í búningsklefa og hringi í Stebba, " Hvernig í óskupunum á ég að komast í jarðaförina, þetta er allt of knappur tími?" Aumingjans Stebbi hafði ekki áttað sig á þessari tímaþröng og úr varð að hann myndi strauja fötin og koma með allar græjurnar að sækja mig rétt fyrir tólf og þá myndi þetta nú allt blessast. Áhyggjum númer eitt aflétt.
Ég skelli mér úr fötunum opna bakpokann og vel mér sundföt (því Stebbi setti öll sundfötin mín í pokann). Fer í sturtuna og út í lón. Og guð minn góður, þar var líka þessi stórhríð og mín ofaní. Tek til við að synda í áttina að "nuddinu" en átti hreinlega í mestu erfiðleikum með það vegna gífurlegs öldugangs og stórhríðar í andlitið og klukkan ekki nema 10:30 og enn hálftími í nuddið. Ég semsagt barðist um í hálftima við að finna eitthvað pínu skjól, en það var ekki að gerast, vindurinn var stjórnlaus og ekkert skjól að fá. Hitti útlendinga sem sögðu bara " This is sureal " aha einmitt það sem ég var að hugsa.
Rétt fyrir 11 sé ég nuddkonuna koma, fara á bakvið skella sér í sundföt, peysu og eyrnaband! Aha peysu og eyrnaband, og svo hoppaði hún út í. Byður mig velkomna, skellir mér á bakið á örþunna dýnu með púða undir hnakkann og rennandi blautt fleece teppi yfir. Og viti menn þetta var alveg frábær upplifun. Þarna nuddaði hún mig í 50 mín í stórhríð, þar sem bæði rigndi og snjóaði á mig stanslaust en mér leið bara æðislega. Ekki til að mér yrði kalt eða finndi til annara óþæginda (nema þá kannski vegna mikillar vöfðabólgu) Þetta var því bara rétt hjá útlendingnum eftir allt.
It was sureal.
En takk elsku Stebbi minn, þér tókst að uppfylla allt sem þessi setning er um og þessu nuddi á ég aldrei eftir að gleyma
08apríl
Mín er bara að vinna í lostinu þennan páskadag og ekki búin að fá neitt páskaegg

Eins gott að einhver bæti úr því. Ekki mikið búið að vera í gangi undanfarið annað en að vinna, sem er jú bara gaman. Ekki mikið heldur á dagskránni þannig að ég veit ekki alveg hvers vegna ég er að blogga!!!!!!!! Þannig ég ætla bara að hætta núna
04apríl
Jæja ætli það sé ekki löngu kominn tími fyrir blogg. Það ótrúlega er að ég hef haft frá ógeðslega mörgu skemmtilegu að segja en bara ekki nennt með nokkru móti að blogga það. En núna situr mar í lostinu og segir "hingað og ekki lengra" svo mar verður að reyna að setja niður nokkrar línur. Ég er sem sagt farin að vinna alveg í lostinu í sumar, en verð nú samt eitthvað á útköllum í tjékk inninu með. En þetta er ferlega gaman og yfirleitt mikið stuð, er að vinna frá 14-02 og enda því vinnudaginn yfirleitt á léttu svefngalsi. Svo var nú líka bara svo gaman í vinnunni hjá okkur Beggu og Ástu um daginn að það var eins og maður hefði bara verið í tveggja daga partýi. Það endaði reyndar með partýi hér í flugstöðinni og svo meira geim um kvöldið heima hjá Áróru og svo á Yello, það var bara alveg ferlega gaman. En nú er að detta í páska og mín að vinna reyndar á skírdag, páskadag og annan í páskum belive it or not, alltaf jafn heppin. En það var tekin um það ákvörðun að taka leik í Partýspilinu á föstudaginn langa með Ellý og co borða saman og fl. Það verður pottþétt gaman gaman. En talandi um gaman gaman ég held að Begga skuldi eitt slíkt, hummmm verð að fara að rukka hana, en hún er nottulega bara bumbulíus og ég get bara ekki beðið eftir að fá að knúsast með krílið þegar það kemur í heiminn. En mikið kemur nú bullið út úr mér í belg og biðu og algerlega án skipulags, þetta er alveg ferlegt, en þið náið þessu, ekki satt. Heyrðu ég held ég sé búin að standa pinku vel núna, geri meira seinna og ég lofa meiri skipulagningu.
Já og eitt sko mér finnst að fólk eigi að vera duglegra að kvitta hummmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm.................... (Þegar ég drullast til að blogga þar að segjaJ)
bæjos